|
|
19.10.2004: Countdown -
Athugarsemdir(3749)
|
Já það er farið að styttast í þetta, tónleikar á morgun og flutningur búferla á sunnudaginn.. brrrrr.... :)
..svo fer ég að setja Vampírulögin upp á síðuna, þetta gengur ekki öllu lengur!
|
|
13.10.2004: Pósterdampires -
Athugarsemdir(4392)
|
Jæja, þá er ég hættur hjá póstinum. Á síðustu þremur klukkutímum póstferils míns tókst mér að fá 70 umferðalagabrot skráð á innbyggða ökusíritann í bílnum mínum, talandi um að fara með stæl! :)
Er líka kominn með þessa fínu íbúð í Amsterdam.. hlutirnir farnir að gerast hjá kallinum! Einungis 11 dagar þangað til ég flýg út á vit ævintýranna.
Two Bad Vampires & a Dead Guy Crew eru bókaðir á opnunarpartý Airwaves hátíðarinnar, annað árið í röð. Vampírurnar munu stíga á stokk rétt eftir miðnætti miðvikudaginn 20 október, vopnaðar 80's trommuheilum, hljómborðsgíturum og vocoderum (ef guð lofar).. ..enginn má missa af þessu!
|
|
18.9.2004: Gsm prufa -
Athugarsemdir(1577)
|
Jæja, ég sit hérna á dallinum og er að prufa að senda inn færslu beint úr gsm símanum mínum.
..Þá er bara að sjá hvort þetta virki
|
|